5.12.2014 | 10:05
Hvers vegna á raforkuverð að hækka í framtíðinni.
Það er ekki náttúrulögmál að allir hlutir eigi að hækka. Það er ákvörðun sem við tökum sem búum hér á landi.
Við erum búin að byggja nægilegar margar virkjanir fyrir eiginn not. (íbúana) Og því þurfum við þá að byggja meira ef það á bara eftir að hækka verðið til okkar sem eigum virkjanirnar? Nú er í gangi áætlun um að selja prívataðilum þær og þá mun hækkun koma sjálfkrafa. En hvers vegna á að selja auðlindir ef þær skila okkur í framtíðinni auknum kostnaði. Hversvegna á að byggja fleiri virkjanir ef þær verða svo seldar einkaaðilum?
Ég er hægt og rólega að komast á þá skoðun út frá peningaspursmáli einu og sér að við eigum ekki að virkja meira. Því það getur dottið í hausin á eitthverjum kjána að selja allan pakkan og þú getur ekkert gert þegar búið er að selja. Ímyndaðu þér að þjóðnýta hlutina aftur..... við fengjum Komma stimpil í hvelli. Ég held að ástæðan fyrir því að þau komu ekki nýju stjórnarskránni í gegn um þingið sé sala á auðlindum.
Ég hef aldrei haft neina sérstakar skoðanir á umhverfis málum en ég hef mjög sterkar skoðanir á buddunni minni og þinni. Ég er líklega Nimby-isti. Yes but Not in my bakgarden.
200-300 varmadælur á hverju ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.