Sumir fæðast rauðhærðir og aðrir með Adhd.

Allir vita að það þarf lítið til að breita niðurstöðu vísinda rannsókna. Til dæmis getur verið að þeir sem frá greiningu eru oft neyddir í hana af lögfræðingi sem er að reina að fá samúð dómarans og milda dóminn.

Það er mikið um lesblindu ofvirkni og athyglisbrest í minni fjölskyldu, en sú eina sem ekki hefur neitt af þessum einkennum, er eina manneskjan sem hefur brotið lög.
Já AdHd eru hvatvísir, það er, hugsa ekki alltaf fyrir horn sem börn. En þeir vaxa úr grasi eins og aðrir. Og það er ekki óalgengt að í minni fjölskildu sé þeir líka með háskólamenntun, stundum tvær. Það þarf bara að gera þeim grein fyrir að það þarf að vera helmingi duglegri og vinnusamari til að ná sama árangri og þessir svo kölluðu meðal Jónar.
Fókusa á hæfileikana ekki hömlurnar og ekki vera að rembast eins og rjúpa við staur í eitthverju sem ekki hentar hæfileikunum. Það skapar bara pirring, vanmátt og getur leitt til að börn velji sér rangan félagskap.

Oft,heyri ég móðir eða föður segja að barnið sé með Adhd, en í helmingi tilfella hef ég komist að þeirri niðurstöðu að vandamálið með barnið, er ekki Adhd (þá er ég ekki að segja að það hafi það ekki líka) heldur að Barnið er undir miklu álægi í helmingi tilfella sem leiðir til óæskilegrar hegðunar. Það getur verið margt, frá einelti eldri systkinis,skilnaði foreldra, kulda í uppeldi, eða vöntun á öryggi vegna þess að mamma og pabbi eru að drekka eða bara aldrei heima.

Eða að barnið er með Asberger, (einhverfu) eða geðsjúkdóma. Í mörgum tilfellum vill foreldrið ekki segja alla söguna þó barnið sé greint og komið inn á geðdeild.
Nú langar mig að slá upp nokkrum tölum án ábyrgðar og bara byggt á reynslu miðaldrar kellingar.
Tíu prósent af fólki er með mismunandi mikið af lesblindu ofvirkni og athyglisbresti, eða það sem ég kalla í gani Small, Medium og Large.
Í sama hlutfalli 10% tel ég vera einhverfu rófið með Asberger sem small og svo framvegis.
Og svo koma geðsjúkdómarnir í sama hlutfalli og öllum litum og afbrigðum.

En verst er að greina siðblindingjana sem líka er fæðingar.....galli. Þeir koma í Small Medium og Large en það er fjandi erfitt að sjá þá út og eiga það til að setja heilu samfélöginn á hausinn.
Þessir hópar að mínu persónulega mati eiga ekki frekar samleið heldur en hverjir aðrir hópar í samfélaginu en siðblinda hefur ekki hingað til verið talinn sjúkdómur því finnst mér þessi grein að ofan vera takmörkuð.
Sérstaklega þar sem það ætti að bera saman fólk á fimmtugsaldri þegar önnur einkenni eru kominn betur í ljós og þá á ég við siðblindu. Mér myndi aldrei detta í hug að selja þessar skoðanir mínar sem vísindagrein. En í þessari grein taldi ég 5 sinnum orðið sjúklingur eða sjúkdómur.

Það kom fyrir á Spáni á miðöldum ef að það fæddist barn sem var rauðhært að það væri brennt á báli. Með sama huga og við horfum til þess í dag, mun næsta kynslóð horfa á þegar stimpillinn sjúkdómur, er festur við allt mögulegt á okkar tímum. Leið fólks með takmarkaða þekkingu að reyna að vinna úr upplýsingum á oft skrítin hátt.

Hafið svo yndislega og góða helgi.


mbl.is Lyf við ADHD draga úr glæpahneigð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband