52 konur átt barn á íslandi um eða eftir fimmtugt.

Samkvæmt íslenskri  þjóðskrá hafa 52 konur orði ófrískar um eða eftir 50. En reykingar hafa mikil áhrif á frjósemi bæði kvenna og karla og alveg jafnt slæmt fyrir bæði. Reikingar eiðileggja blóðrásarkerfið að kynfærunum. (svo gögn frá reykingarkynslóð eru ómarktæk)

Níu árum eftir að mér var neitað um að fara í glasa vegna þess að ég væri of gömul fór ég í blóðransókn til að mæla gæði eggjana minna. Og niðurstaðan var sú að ég fékk 8,5 sem er frábær einkunn. En 10 væri lélegt og 20 ertu komin úr barneign.

Lögin á íslandi voru að konur máttu fara í glasa til 42 ára og karlar til 50 ára óháð getu. Ég er með blokkeraðan eggjaleiðara og hinn var fjarlægður eftir að ég varð ófrísk og fóstrið festist í eggjaleiðaranum. En það var 1/2 ári eftir að ég fékk neitun um glasa.  Ég gat sannað getu mína en læknarnir gátu ekki sannað að ég gæti ekki eignast barn.  Í kjölfarið var lögunum breitt þar sem það kom í ljós að verið var að brjóta lög á mér.  Og aldursmörkinn fjarlægð, undaþágunefndinn lögð niður og allt vald sett í hendur manna sem voru búnir að sína að þeir gætu ekki metið/ né sannað málið

Fordómarnir sem ég fékk af höndum svokallaðra sérfræðinga voru ótrúlegir. Og að þeir þurftu ekki að sanna sitt mál á neinn hátt er og var alvalegur hlutur. Það var nóg að þeir bæru titilinn læknir.

Þess vegna hef ég farið reglulega til að mæla gæði eggja minna og nú síðast fyrir ári síðan. Það vantaði að til væru óhrekjanleg gögn, þegar næsta kona hefur kjark til að takast á við lög sett af mönnum.

 

 


mbl.is Ófrjósemi eldri kvenna orðum aukin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl. Mig langaði bara að segja við þig að þú ert hetja. Mesta hættan sem staðar að mannfólkinu er ofvaxið kerfis-og skrifræðisbákn ofmetinna og valdasjúkra kerfiskarla og sérfræðinga með ofvaxið og ómannúðlegt regluverk sem metur frelsi einstaklingsins, vilja hans og óskir sífellt minna. Lifi frelsið! Lifi fólk eins og þú! Hver geri við sitt líf það sem hann sjálfur vill, öðrum að meinalausu. Frelsið er heilagt. Látum engan taka það frá okkur! Að meina annarri manneskju um að eignast barn er viðurstyggilegt í dag, rétt eins og það var viðurstyggilegt fyrir nokkrum árum þegar flogaveikir og fleiri í nágrannalöndum okkar voru sendir nauðugir viljugir í ófrjósemisaðgerðir í nafni eugenics stefnunnar. Nóg komið af ofríki stjórnvalda!

Íslendingur (IP-tala skráð) 21.9.2013 kl. 02:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband