Hver treystir læknum á skeri nálægt Grænlandi og Norðurpólnum.

Ert þú til í að fara í lítaaðgerð til Rúslands(mjög ódírt), eða glasa til Indlands(kostar 1/4af verðinu í Evrópu)? Hvernig væri að menn, kæmu sér smá á jörðinna.

Aðrar þjóðir eru með jafn mikla fordóma, og líklega meiri en þú, svo líkurnar á að Læknum fyrir utan heimalandið sé treyst eru litlar. 

Þegar ofan á bætist fáfræði um Ísland og sú staðreind að við erum álitin útkjálka krumma skuð.  Þá verður þetta bara findið. Það eru helst Grænlendingar sem myndu koma annað er svolítið vonlaust. 

Íslenskir læknar hafa verið að reyna lengi að fara í Útrás. Gott dæmi er þegar Glasa-bræður ætluðu að selja New York búum glasa-meðferð hér. Þeir byrjuðu á að setja stakkin mjög þröngan með lögum hér heima, svo að jaðarhópar (íslenskir) kæmust ekki með, eins og konur eldri en 42 ára, en það er sá hópur sem mest þarf á þessari þjónustu að halda.  Og viti menn þar með urðu þeir bestir í Heimi. Það er gott að geta stjórnað öllu sínu umhverfi (og lagasetningum). En þar með lokuðu þeir líka á eldri konur frá New-York.  ha..ha...ha.......

Flestir sérhæfðir læknar í Indlandi eru lærðir í London. Þeir eru vel búnir tækjum og það er gaman að geta skotist niður til Kerala til að kvíla sig á ströndinni á eftir. Þannig að ég myndi velja Indland.

En mín reynsla er sú að það er lítið gaman að kúra einn á hóteli í Köben og skilja ekki lækninn þegar hann er að klúðra málum, búinn að stinga hnausþykkri nál í gegnum eggjastokkin hjá þér, óvart. En fyrir karla að skilja málið betur, þá er eggjastokkarnir búinir til úr sama efni og pungurinn hjá körlum og svipað tilfininga næmur.

Ein með reynslu

Matty 

(orðið reynsla er komið af raunum).


mbl.is Íslenskir læknar hyggja á útrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ísland er og verður ávalt "útkjálka krumma skuð" ef við höldum áfram að álíta okkur sem svo. Sker.. ja.. við erum ekki svo lítil, samkvæmt wikipedia þá er ísland um 103 þús ferkílómetrar en danmörk 43 þúsund ferkílómetrar, auk þess þá er það nokkuð flatara en flestar þjóðir, því myndi ég hald að það væri skerið. Ekki illa meint, en ég geri ráð að þú hafir lent illa í Glasa-bræðrunum finnst þú veist svona mikið um þá og talar sem þeir séu algildi yfir alla framþróun í heilbrigðisgeirnaum hérna heima? Líttu á björtu hliðina, við erum ekki Íslendingar nema þetta reddist ;)

parkoverall (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 10:58

2 identicon

Ekki vera svona neikvæð ástin mín.... ég bý í Svíþjóð og í sannleika sagt líta Svíar t.d. ekki á Ísland sem krummaskuð, frekar sem stað sem þau verða að heimsækja og sé sérstakur (á góðan hátt).

Joseph (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 11:26

3 identicon

ég gafst algerlega upp á að lesa greinina vegna herfilegra stafsetningarvillna...

 hefði ekki búist við slíku af  manneskju sem titlar sig kennara...

edda (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 11:41

4 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Þetta er ótrúlegt raus þessi pistill hjá þér.  Þú minnist ekki orði á augnlækningar enda virðist þú ekki hafa neina þekkingu á þeim málum.  Þúsundir Íslendinga hafa nú farið í laser aðgerðir á augum til algerrar leiðréttingar á sjónlagi sínu undanfarin ár og talar sá árangur sínu máli.  Norðurlandabúar tala flestir ensku og sumir augnlæknar góða sænsku eða dönsku þannig að tungumálaörðugleikar eru ekki fyrir hendi.  Fólk þarf ekki á þinni bölsýn að halda í kreppunni.  Reyndu heldur að fagna með þeim sem eru að finna leiðir til að afla gjaldeyri inn í landið. 

Svanur Sigurbjörnsson, 18.11.2008 kl. 13:04

5 identicon

ég er alveg hneyksluð á þessari orðaræðu, íslenskir læknar eru með þeim bestu,

Guðrún Björk (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband